Um okkur

K. Steinarsson ehf. var stofnað í nóvember árið 1999 af Kjartani Steinarssyni og tók strax við umboði til sölu á nýjum og notuðum bifreiðum fyrir Heklu hf. og seldi einnig bifreiðar fyrir einstaklinga. Þá var fyrirtækið staðsett að Brekkustíg 39 í Reykjanesbæ.
Í júlí 2000 fluttist fyrirtækið í nýtt og glæsilegt húsnæði að Njarðarbraut 13 í Reykjanesbæ, á sama tíma tók K. Steinarsson ehf. við þjónustuverkstæði fyrir VW, MMC, Audi og Skoda. Þar störfuðu að jafnaði 8 starfsmenn; 5 starfsmenn á verkstæði, 2 á bílasölu og einn í bókhaldi.
Þann 1. júní 2011 flutti K. Steinarsson reksturinn að Holtsgötu 52. Samhliða þeim flutningi sagði fyrirtækið upp samningum við Heklu og lagði niður verkstæðisþjónustuna. Í dag er K. Steinarsson við Njarðarbraut 15 og er umboðsaðili fyrir bílaumboðið Öskju sem selur KIA og Mercedes Benz.

Starfsmenn


Kjartan Steinarsson
Framkvæmdastjóri
Sími 420 5001
GSM 825 0001
Ólafur O. Einarsson
Sölustjóri
Sími 420 5002
GSM 771 6063
Kári Kjartansson
Sölumaður
Sími 420 5003
Guðbjörg Theodórsdóttir
Fjármálastjóri og viðurkenndur bókhaldari
Sími 420 5004

Staðsetning

Verið velkomin til okkar að Njarðarbraut 15, 260 Reykjanesbær.

Afgreiðslutími

mánudagur
09:00 - 17:00
þriðjudagur
09:00 - 17:00
miðvikudagur
09:00 - 17:00
fimmtudagur
09:00 - 17:00
föstudagur
09:00 - 17:00
laugardagur
Lokað
sunnudagur
Lokað

Verðskrá

Lágmarkssölulaun 35.000 kr.
Útprentun ökutækjaskrár 990 kr.
Eigendaskiptagjald/Aðalskoðun 2.292 kr.
Umsýsla/Aðalskoðun 540 kr.
Umferðaröryggisgjald/Aðalskoðun 525 kr.
Virðisaukaskattur 8.767 kr.
Samtals 48.114 kr.

Skjalafrágangur 14.000 kr.
Útprentun ökutækjaskrár 990 kr.
Eigendaskiptagjald/Aðalskoðun 2.292 kr.
Umsýsla/Aðalskoðun 540 kr.
Umferðaröryggisgjald/Aðalskoðun 525 kr.
Virðisaukaskattur 3.727 kr.
Samtals 22.074 kr.

Almenn sölulaun eru 3,5% af söluandvirði + vsk.
Útprentun ökutækjaskrár 990 kr. + vsk.
Eigendaskiptagjald/Aðalskoðun 2.292 kr.
Umsýsla/Aðalskoðun 540 kr. + vsk.
Umferðaröryggisgjald/Aðalskoðun 525 kr.

Rekstraraðili

K. Steinarsson ehf.
Njarðarbraut 15, 260 Reykjanesbær
Kt. 5211992299
Vsk.nr. 64361

Félagið er hlutafélag sem skráð er í hlutafélagaskrá og starfar samkvæmt gildandi lögum og reglum um ökutækjaviðskipti.